Efni
Blað dagsins
Kaupa aðgang
Leit í fréttum mbl.is
Leita í minningargreinum
Geyma leit
Hjálp

Önnur gagnasöfn
Britannica.com
Encyclopaedia Britannica
Orðabók Háskólans

mbl.is
Gagnasafn
Grein
 

Sunnudaginn 30. júní, 2002 - Innlendar fréttir

Fornleifauppgröftur hafinn á Hólum í Hjaltadal

Ein umfangsmesta rannsóknin um árabil

RAGNHEIÐUR Traustadóttir, fornleifafræðingur og aðstoðardeildarstjóri fornleifadeildar Þjóðminjasafns Íslands, stjórnar nú uppgreftri á hinu gamla biskups- og menntasetri á Hólum í Hjaltadal, sem var fyrr á öldum einn helsti þéttbýliskjarni landsins.

Ein umfangsmesta rannsóknin um árabil - mynd
Morgunblaðið/Ragnheiður Traustadóttir
Fornleifagröftur á Hólum í Hjaltadal var undirbúinn síðasta sumar.

RAGNHEIÐUR Traustadóttir, fornleifafræðingur og aðstoðardeildarstjóri fornleifadeildar Þjóðminjasafns Íslands, stjórnar nú uppgreftri á hinu gamla biskups- og menntasetri á Hólum í Hjaltadal, sem var fyrr á öldum einn helsti þéttbýliskjarni landsins. Uppgröfturinn er ein umfangsmesta fornleifarannsókn hér á landi um árabil.

Á mánudag tekur Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra fyrstu "múrskeiðsstunguna", en múrskeið er meðal helstu verkfæra fornleifafræðinga.

Fékk hæsta styrk úr Kristnihátíðarsjóði

Ragnheiður segir að Hólarannsóknin sé á vegum Hólaskóla, Byggðasafns Skagfirðinga og Þjóðminjasafnsins. "Þetta er ein þeirra rannsókna sem fengið hafa styrk úr Kristnihátíðarsjóði. Hún er þverfagleg og yfirgripsmikil," segir hún. Verkefnið fékk hæsta styrkinn úr sjóðnum, 11 milljónir króna, þegar fyrst var úthlutað úr honum nýverið.

Að sögn Ragnheiðar verður hópurinn, sem er skipaður fjölda innlendra og erlendra sérfræðinga og vísindamanna á flestum sviðum menningarsögulegra rannsókna, við uppgröft til 20. ágúst næstkomandi. Ráðgert er að verkefnið taki alls fimm ár.

Hún segir að núna verði fyrst og fremst grafnar upp húsbyggingar. "Hérna var þorp á sínum tíma, með 60 húsum, sem gegndu mismunandi hlutverkum, þegar mest var í kringum kirkjuna. Einnig gerum við ráð fyrir að finna gríðarlegan fjölda gripa, enda er mjög stór öskuhaugur rétt við bæjarhólinn sjálfan. Þar eru góð varðveisluskilyrði," segir hún. Rannsóknarstofu hefur verið komið upp á Hólum og segir Ragnheiður að öll aðstaða til rannsókna og úrvinnslu sé til fyrirmyndar.

Alls 35 þátttakendur auk heimamanna

15 manna hópur frá bandaríska háskólanum UCLA er staddur í Skagafirði við uppgröft. Vinna hópsins gengur út á að þróa tæki til að mæla á yfirborði; jarðsjá, viðnámsmælitæki og leiðnimælingatæki.

Vísindamenn í hóp Ragnheiðar eru 15 talsins, auk þess sem fjöldi heimamanna tekur þátt í verkefninu.

Ragnheiður segir að takmarkaðar fornleifarannsóknir hafi farið fram á staðnum áður, en forkannanir benda ótvírætt til þess að Hólar séu auðugir að fornleifum og að varðveisluskilyrði í jörð séu góð. Miklar vonir eru því bundnar við þennan fornleifagröft, sem standa mun í fimm ár samkvæmt áætlunum.

Einn sögufrægasti staður Íslands

Samkvæmt Landnámu nam Hjalti Þórðarson Hjaltadal og bjó á Hofi en heimildir greina fyrst frá byggð á Hólum um miðja 11. öld þegar þar var reist kirkja og síðan í tengslum við stofnun biskupsstólsins 1106. Þar stóð fyrsti skóli Norðurlands, skóli Jóns Ögmundssonar. Á Hólum sat Jón Arason, síðastur kaþólskra biskupa Hólastóls. Um er að ræða einhvern sögufrægasta stað Íslands og hefur verið búið þar samfellt frá því að landið byggðist.


Prentvæn útgáfa




© Morgunblaðið, 2002